Heima og heiman

... ge-fokking-nau!

Eldra efni

  • 2009

Tenglar

Blogg

5.11.2009

Sagnfræði

Í pistli dagsins ætla ég að bjóða upp á tvo sagnfræðigullmola (að mér finnst). Fyrst ber það að telja erindi Sigrúnar Davíðsdóttur hjá Sagnfræðingafélaginu (hún er reglulega með pistla í Speglinum, ef einhver kannast við hann). Hún fjallar þar um kreppuna og kunningjaþjóðfélagið og er skarpskyggn að vanda. Er að hugsa um að segja ekki meira um það, en þarna er 38 mínútum vel varið!

Seinni molinn er þessi grein á Eyjunni. Þar segir frá því að Páll Theodórsson eðlisfræðingur er búinn að skrifa grein í Skírni þess efnis að byggð á Íslandi hafi sennilega hafist upp úr 670, frekar en 870 eins og löngum hefur verið haft fyrir satt. Þetta byggir hann á C-14 aldursgreiningu og hrekur þá kenningu að "í andrúmsloftinu yfir Íslandi væri staðbundin lægð í styrk kolefni-14" (en hann gerði það víst fyrst 1998). Þetta kemur mér svo sem ekkert á óvart, enda var mér kennt í menntaskóla að Landnáma hafi verið skrifuð til að styrkja stöðu hins nýja aðals sem var að koma undir sig fótunum (nei, það breytist aldrei neitt).

Mér fannst líka athyglivert að sjá athugasemdina frá Ögli (04.11 2009 kl.23:42) þar sem hann tengir saman íslensk og gelísk orð, m.a. strákur og stelpa og örnefnið Apavatn - sem mér hefur alltaf þótt mjög merkilegt! Hann heldur því líka fram að þetta sé til komið af því að hér hafi keltar numið land á undan víkingunum. Það gæti því verið að landnám norrænna manna hafi byrjað 874, en ég trúi því ekki að landið hafi verið meira og minna byggt munkum milli 670 og 870.

Skrifað 5.11.2009 kl. 14:11 af Einar pennalati

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 8355
Samtals gestir: 2940
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:18:49