Heima og heiman

... ge-fokking-nau!

Eldra efni

  • 2009

Tenglar

Blogg

8.10.2009

Úr daxins önn

Svefnleysi og andleysi fara hönd í hönd þessa dagana. Kosturinn við að komast ekki oft í að lesa fréttir frá Íslandi er að það er í raun ekkert að gerast þar: Icesave er í pattstöðu og annað efnahagstengt bíður eftir að það leysist. Hitt er allt í nefnd.

Fór í endurhæfingarleikfimi fyrir nýorðnar léttari og komst að því að í Þýskalandi er ekki farið í sturtu í gymminu. Maður mætir í íþróttafötum með skóna undir hendinni, íþróttast og svitnar og fer svo heim í sturtu. Urg. Þetta kerfi var fínt í Ástralíu, enda svo heitt að maður svitnar meira á leiðinni heim en í gymminu, en hér er alveg svona alvöru vetur, þannig að maður verður að fara í kápu/úlpu á leiðinni heim. Yfir sveitt íþróttafötin. Urg og aftur urg.

Skáldaði eftirmatarshushi um daginn. Það var furðu gott og hljómar svo: Sjóðið sushi-hrísgrjón í mjólk og með smá hunangi (ætla að prófa einhvern líkjör næst). Bræðið súkkulaði, hvítt súkkulaði og/eða annað álíka bragðefni í besta vini kokksins (örbylgjunni) og hrærið saman við soðin grjónin. Mótið nigiri-bita. Skreytið með ávöxtum, súkkulaðispónum, krókanthnetum eða hverju sem er. Súkkulaðið harðnar þannig að það er ekkert mál að borða þetta með prjónum. Et voilá!


Skrifað 8.10.2009 kl. 11:34 af Agnes

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 71
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 8208
Samtals gestir: 2908
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 22:37:11