Heima og heiman

... ge-fokking-nau!

Eldra efni

  • 2009

Tenglar

Blogg

10.8.2009

Good cop, bad cop

Í gegnum tíðina hefur orðið til ákveðin verkaskipting hér á heimilinu. Leiðilegustu störfunum er vissulega jafnt skipt, en Agnes eldar t.d. oftast meðan ég sé um þvottinn, o.s.frv.

Með tilkomu Völundar hefur störfunum fjölgað og eðlilega verður til ákveðin verkaskipting. Það er nokkuð ljóst að aftur sér Agnes um matreiðsluna en ég sé hinsvegar oftast um að skifta á drengnum því Agnes hefur átt erfitt með að beygja sig yfir hann eftir keisaraskurðinn. Þetta er auðvitað einfallt að útskýra fyrir þér, lesandi góður, en mig grunar að Völundur sjái okkur bara sem "bad cop" og "good cop", því brjóstagjöf er æði, en bleyjuskipti ekki svo mjög!

Það gerðist svo um daginn að einu sinni sem oftar að Völundur fór að dotta þegar hann var bara búinn með annað brjóstið. Þá höfum við oft brugðið á það ráð að ég tek hann, læt ropa og skipti um bleyju. Eitthvað var minn maður ekki sáttur við þessa meðferð og orgaði hástöfum meðan ég baxaði við bleyjuskiptin. Þegar ég lét hann svo í fangið á Agnesi þagnaði hann snögglega, en leit samt ekki af mér. Ég fékk svo eitt stutt "vahh" í andlitið áður en hann snéri sér að brjóstinu. Ég get ekki túlkað það öðruvísi en svo að hann sé búinn að fatta plottið: þessi skeggjaði er "bad cop" - "I'm on to you mister!"

Skrifað 10.8.2009 kl. 14:34 af Einari pennalata

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 8331
Samtals gestir: 2935
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:23:51